„Töfrar stafrænnar myndvinnslu“

 Í vetur verða haldin námskeið fyrir lærða sem leikna

og sérsniðin fyrir mismunandi hópa í stafrænni myndvinnslu og prentun.

Kennari: Einar Erlendsson, ljósmyndafræðingur



Þeir sem hafa áhuga að fylgjast með varðandi þessi námskeið geta sent tölvupóst HÉR


Skilmálar og skilyrði:

Þátttakendur þurfa að hafa eigin tölvur, borðtölvu eða fartölvu. Þeir þurfa einnig að hafa lítinn borðlampa og ritföng.

Þátttakendur þurfa að hafa Photoshop CS4 eða nýrra, Lightroom 2 eða nýrra og Adobe Camera Raw. Á einstöku námskeiði verður sérstaklega kennt á Lightroom 3 eða Photoshop CS5 og það þá tekið sérstaklega fram. Kennsla á annann sambærilegan hugbúnað kemur vel til greina. Einnig verða haldin sérhæfð námskeið í Nik Software og OnOne Sofware, softproofing og hágæða prentun.

Eins kennsla varðandi almenna verkferla, flokkun og skráningu myndasafna.

Hægt er að nálgast 30 daga „demo“ frá Adobe forritum á  www.adobe.com.  Ef það hefur verið gert áður, getur þurft að nota nýtt netfang.

Undirritaður getur útvegað mjög gott kennsluhúsnæði eða mætt hjá viðkomandi fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum með sérsniðin námskeið.

Algeng lengd námskeiða eru 3 kvöld, eða 2 kvöld og einn laugardagur frá 10-16, eða eftir nánara samkomulagi.


Það sem mestu máli skiptir er að kennslan sé markviss fyrir viðkomandi hóp og þátttakendum til gagns og gamans.

 

Einar Erlendsson,

B.Sc. Imaging Science 

s: 824-1849

einar@focusonnature.is


Hugmyndir um námskeið

 


Styrktaraðilar
Adobe Canon
Epson X-Rite
Nik Software onOne software
Photoshop Cafe Double Exposure